Kennslubækur
Skipsbækur á Ísafirði gefa út kennslubók í vélgæslu. Guðmundur Einarsson, vélfræðikennari við Menntaskólann á Ísafirði, hefur skrifað kennslubók í vélgæslu sem gefin hefur verið út af skipsbókum, fyrirtæki Guðmundar og Ólafar Veturliðadóttur eiginkonu hans.
Skipsbækur sáu um alla vinnslu bókarinnar en hún er ætluð fyrir vélgæslunámskeið sem veita ákveðin starfsréttindi á báta undir 20 rúmlestum. Bókin skiptist í þrjá hluta og fjallar um vélina, vélbúnað og rafmagnsfræði.
Guðmundur segir miðhluta bókarinnar enn í mótun og eigi eftir að bætast við hann í seinni útgáfum.
Guðmundur segir bókina þegar í notkun á vélgæslunámskeiðum í Keflavík og Vestmannaeyjum.
Ætlunin er að halda samskonar námskeið á Ísafirði fyrir páska og á Tálknafirði í ágúst, í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða.